Enski boltinn

Mourinho: Hazard getur orðið jafn góður og Messi og Ronaldo

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eden Hazard, leikmaður Chelsea.
Eden Hazard, leikmaður Chelsea. Vísir/Getty
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur mikla trú á Belganum Eden Hazard og telur að hann geti komist í allra fremstu röð.

Hazard, sem er 23 ára gamall, hefur skorað níu mörk í 22 deildarleikjum í vetur og verið lykilmaður í liði Chelsea.

„Getur hann komist í sama gæðaflokk og Lionel Messi og CristianoRonaldo? Ég segi já því þróun hans hefur verið frábær,“ sagði Mourinho við enska fjölmiðla.

„Hann hefur enn tíma til að bæta sig enda Cristiano er 28 ára gamall og Messi 26 ára. Eden er afar metnaðarfullur.“

Mourinho telur þó að Belginn ungi verði ekki jafn mikill markaskorari og þeir Ronaldo og Messi hafa verið undanfarin ár. „Eden er hreinræktaður kantmaður og því tel ég að það verði erfitt fyrir hann að verða markahæsti leikmaður deildarinnar. Það hefur yfirleitt áhrif á skoðun fólks á þessum málum.“

„En hann getur klárað leiki upp á sitt einsdæmi er leikmaður sem stendur sig vel allt tímabilið. Þar að auki hef ég fundið fyrir því að hann tekur mikla ábyrgð á sínar herðar.“

Mourinho viðurkennir að það þurfi meira til en að spila vel til að tryggja sér einn daginn Gullbolta FIFA. „Til þess þarf öflugt fylgdarlið og pólitískan kraft. Það er allt önnur saga.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×