Negredo, Dzeko og Aguero skoruðu allir i bikarsigri City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2014 22:02 Mynd/NordicPhotos/Getty
Manchester City er komið áfram í 4. umferð ensku bikarkeppninnar eftir 5-0 sigur á b-deildarliði Blackburn Rovers á Etihad-leikvanginum í kvöld í endurteknum leik í 3. umferðinni en liðin gerðu 1-1 jafntefli á heimavelli Blackburn. Manchester City hefur boðið upp á mikla markaveislu Etihad-leikvanginum á þessu tímabili og liðið hefur nú skorað 64 mörk í 16 heimaleikjum á leiktíðinni. Framherjarnir Álvaro Negredo, Edin Dzeko og Sergio Agüero komust allir á blað í kvöld. Álvaro Negredo skoraði tvö fyrstu mörkin og Sergio Agüero það fjórða aðeins mínútu eftir að hann kom inná sem varamaður fyrir Negredo. Edin Dzeko skoraði síðan sitt annað mark undir lokin og innsiglaði sigurinn með sínu áttunda bikarmarki á leiktíðinni, tvö í bikarnum og sex í deildabikarnum. Hann hefur einnig lagt upp fjögur önnur mörk í þessum sex leikjum í bikarkeppnunum tveimur. Sergio Agüero var að spila sinn fyrsta leik síðan að hann kom til baka eftir meiðsli sem höfðu haldið honum frá keppni síðan í sigurleik á Arsenal 14. desember. Argentínumaðurinn var ekki lengi að skora en allir framherjar City-liðsins eru sjóðheitir. Álvaro Negredo kom Manchester City í 1-0 á lokamínútu fyrri hálfleiks eftir fyrirgjöf Fernandinho og bætti síðan öðru marki við á 47. mínútu eftir sendingu Aleksandar Kolarov. Negredo hefur nú skorað 23 mörk á sínu fyrsta tímabili með City. Edin Dzeko skoraði þriðja markið á 67. mínútu og lagði síðan upp mark fyrir Sergio Aguero á 73. mínútu. Dzeko skoraði fimmta markið á 79. mínútu eftir sendingu Jesus Navas. Manchester City mætir b-deildarliði Watford í 32 liða úrslitum ensku bikarkeppninnar.Mynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/Getty
Enski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Handbolti Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjá meira