Solskjær: Alltaf dreymt um að starfa í ensku úrvalsdeildinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. janúar 2014 12:59 Nordic Photos / Getty
Ole Gunnar Solskjær segir að draumur hafi ræst þegar hann samþykkti að gerast knattspyrnustjóri velska liðsins Cardiff sem leikur í ensku úrvalsdeildinni. „Þetta er frábær áskorun fyrir mig. Cardiff er reiðubúið að taka næsta skref og ég vona að mér takist að hjálpa liðinu til þess,“ sagði Solskjær á blaðamannafundi í dag. „Mig hefur ávallt dreymt um að gerast knattspyrnustjóri liðs í ensku úrvalsdeildinni og ég er hæstánægður með að fá nú tækifæri til þess.“ „Ég er mjög jákvæður knattspyrnustjóri. Ég vil spila góðan fótbolta og í gær sýndum við hvað við færir um að gera inn á vellinum,“ bætti Solskjær við en Cardiff tapaði þá fyrir Arsenal, 2-0, en bæði mörk leiksins voru skoruð á lokamínútunum. „Það eru erfiðir leikir fram undan og við hlökkum til að takast á við næstu verkefni.“ Þess má geta að Cardiff mætir Manchester United, gamla félagi Solskjær, á Old Trafford þann 28. janúar næstkomandi. Mehmet Dalman, stjórnarformaður Cardiff City, segir að Solskjær hafi verið efstur á óskalistanum eftir að Malky Mackay var rekinn í síðustu viku. „Það var bara eitt nafn í mínum huga frá fyrsta degi. Við erum ánægðir með að geta boðið Ole velkominn til félagsins,“ sagði Dalman. Aron Einar Gunnarsson leikur með Cardiff og kom inn á sem varamaður í leiknum í gær.BREAKING: @CardiffCityFC are delighted to confirm the arrival of Ole Gunnar Solskjaer as first team manager. pic.twitter.com/8tisnayWDu — Cardiff City FC (@CardiffCityFC) January 2, 2014
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Gray hetja Tottenham Enski boltinn Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Jöfnuðu 128 ára gamalt met Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Fleiri fréttir Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Sjá meira