Bony skaut Swansea áfram á Old Trafford 5. janúar 2014 16:00 Mynd/NordicPhotos/Getty
Wilfried Bony skoraði sigurmark Swansea gegn Manchester United í uppbótartíma á Old Trafford í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í dag. Fabio, vinstri bakvörður Manchester United fékk rautt spjald þegar stutt var til leiksloka og náðu gestirnir að nýta sér liðsmuninn á lokamínútum leiksins. Gestirnir frá Wales náðu forskotinu strax á tólftu mínútu þegar Wayne Routledge lyfti boltanum snyrtilega yfir Anders Lindegaard sem stóð í marki Manchester United í stað David De Gea. Það tók heimamenn aðeins fjórar mínútur að jafna metin, Javier Hernandez potaði þá fyrirgjöf Alexander Buttners yfir línuna af stuttu færi. Vinstri bakvörðurinn, Fabio Da Silva kom inná í lið Manchester United í stöðunni 1-1 þegar korter var eftir af leiknum en hann stoppaði stutt. Aðeins fimm mínútum síðar fauk hann af velli með rautt spjald eftir ljóta tæklingu á Jose Canas. Við þetta færðu leikmenn Swansea lið sitt framar á völlinn og náðu að skora sigurmarkið í lok venjulegs leiktíma. Wilfried Bony var mættur inn í vítateig til að skalla fyrirgjöf Routledge framhjá Lindegaard. Sama hvað heimamenn reyndu á lokamínútum leiksins náðu þeir ekki að ógna marki Swansea og lauk leiknum því með 2-1 sigri gestanna. Þetta var fimmti tapleikur Manchester United á tímabilinu á heimavelli. Þetta er aðeins í annað skiptið síðan 1985 sem Manchester United dettur út í þriðju umferð enska bikarsins.
Enski boltinn Mest lesið Tindastóll - Stjarnan | Sópur í Síkinu? Körfubolti Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Fótbolti Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Golf Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Sjá meira