Negredo með þrennu í stórsigri Manchester City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2014 21:38 Spánverjinn Álvaro Negredo fagnar marki í kvöld. Mynd/NordicPhotos/Getty
Manchester City er komið með annan fótinn í úrslitaleik enska deildarbikarsins eftir 6-0 stórsigur á West Ham í fyrri undanúrslitaleik liðanna á Etihad-leikvanginum í Manchester í kvöld. Spánverjinn Álvaro Negredo skoraði þrennu á fyrstu 50 mínútum leiksins og átti auk þess stoðsendinguna á Yaya Touré í þriðja marki liðsins. Edin Džeko skoraði síðan tvö síðustu mörkin. Mörkin hjá Álvaro Negredo voru fjögur flott vinstri fótarskot, allt alvöru afgreiðslur. West Ham tapar nú illa í hverjum leik en lærisveinar Sam Allardyce töpuðu 5-0 á móti b-deildarliðið Nottingham Forest í ensku bikarkeppninni um síðustu helgi. Allardyce tefldi þá fram hálfgerðu unglingaliði en útkoman var engu að síður sú sama hjá liðinu í kvöld. Sæti Sam Allardyce hlýtur að hafa hitnað enn frekar eftir þennan skell í kvöld. Álvaro Negredo skoraði fyrsta markið með frábæru viðstöðulausu skoti á 12. mínútu eftir sendingu Yaya Toure og staðan var orðin 2-0 á 26. mínútu þegar Negredo skoraði eftir laglega stungusendingu frá Edin Dzeko. Yaya Toure skoraði þriðja markið á 40. mínútu eftir að fengið nægan tíma til að athafna sig og Álvaro Negredo innsiglaði síðan þrennu sína á 49. mínútu eftir að hálf-varið skot frá David Silva barst til hans. Edin Dzeko skoraði fimmta markið á 60. mínútu eftir laglega sókn og fyrirgjöf frá Gael Clichy og bætti síðan við lokamarkinu á 89. mínútu með frábæru skoti úr teignum. Edin Dzeko hefur þar með skorað í öllum deildarbikarleikjum City í vetur, samtals sex mörk. Manchester United tapaði 1-2 á móti Sunderland í hinum undanúrslitaleiknum í gær en United á seinni leikinn sinn á heimavelli sínum Old Trafford. Það eru því enn líkur á Manchester-slag í úrslitaleiknum á Wembley.Mynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/Getty
Enski boltinn Mest lesið Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Íslenski boltinn Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf „Mikið í gangi sem enginn veit af“ Formúla 1 Barist um undirskrift Nunez Enski boltinn Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Íslenski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Sjá meira