Enski boltinn

Sonur Beckhams semur við Arsenal

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Beckham-fjölskyldan á rauða dreglinum. Brooklyn stendur á milli foreldra sinna.
Beckham-fjölskyldan á rauða dreglinum. Brooklyn stendur á milli foreldra sinna. Vísir/Getty
Arsenal hefur gert samning við Brooklyn Beckham, elsta son Davids Beckham, út tímabilið. Stákurinn á svo von á áframhaldandi samningi standist hann væntingar hjá Lundúnaliðinu.

Samkvæmt frétt Daily Star hafði Arsenal betur í baráttu við Chelsea og Manchester United um Brooklyn, sem er 15 ára gamall.

Haft er eftir heimildarmanni innan raða Arsenal að Brooklyn búi yfir miklum hæfileikum og hafi staðið mig með prýði á æfingum hjá Lundúnaliðinu.

Þótt David Beckham sé goðsögn hjá Manchester United er hann í góðu sambandi við Arsene Wenger, þjálfara Arsenal, en Beckham æfði með liðinu fyrir nokkrum árum til að halda sér í formi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×