Gylfi fór ekki á taugum árið 2010 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2014 06:30 Gylfi Þór Sigurðsson fagnar jöfnunarmark sínu á Anfield í janúar 2010. Fréttablaðið/getty
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Swansea sækja Liverpool heim í kvöld í sextán liða úrslitum enska deildarbikarsins en leikurinn hefst klukkan 20.00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Gylfi hefur farið á kostum með liði Swansea á tímabilinu og skoraði eitt marka liðsins þegar það sló Everton út úr 32 liða úrslitum keppninnar. Nú er komið að hinu Bítlaborgarliðinu og það í leik á Anfield. Liverpool-liðið hefur verið í vandræðum með að skora í síðustu leikjum en Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, gerir eflaust mikið af breytingum á sínu liði í kvöld. Gylfi haltraði reyndar af velli á móti Leicester um helgina en hafði áður átt þátt í báðum mörkum liðsins. Garry Monk, stjóri Swansea, mun tefla fram sterku liði í kvöld en svo getur farið að Gylfi verði hvíldur svo hann nái sér betur af nárameiðslunum. Gylfi vill þó örugglega ekki missa af þessum leik enda efalaust ólmur í að upplifa annan sigur á Anfield líkt og þann með Reading fyrir tæpum fimm árum þegar b-deildarliðið sló Liverpool út úr enska bikarnum í janúar 2010. Gylfi var þá ískaldur á úrslitastundu þegar hann jafnaði metin úr vítaspyrnu í uppbótartíma og Reading skoraði síðan tvö mörk í framlengingunni. Íslensku leikmennirnir Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru einnig í liðinu og Brynjar Björn lagði upp lokamark Reading með eftirminnilegum hætti.
Enski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Sport Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira