Erlent

Kom að manni að nauðga hundinum hennar

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Kona kom fram í sjónvarpsfréttum í Bandaríkjum.
Kona kom fram í sjónvarpsfréttum í Bandaríkjum.
Bandarískri konu brá þegar hún gekk út úr húsi sínu í gærmorgun. Í bakgarðinum sá hún nakinn mann misnota hundin hennar, sem ber nafnið Layla og er af tegundinni Pit bull.

Konan, sem heitir Alice Woodruff og býr í borginni Waterbury í Conneticut-fylki, segir frá þessu í viðtali við sjónvarpsstöðina WTNH og má sjá hér að neðan.





Hún segir frá því þegar hún kom út í bakgarðinn sinn klukkan tíu í gærmorgun. Þar sá hún nakinn mann liggja undir tíkinni. „Ég hélt fyrst að hún hefði drepið manninn,“ segir Woodruff, en Layla þykir nokkuð árásagjörn. En síðan áttaði Woodruff sig á því hvað var að gerast. Hún hélt á kerti og henti því í manninn. Hún öskraði á hanni, skipaði honum að fara af hundinum. Svör mannsins voru skrýtin, hann sagði henni að þetta yrði dagurinn sem þau myndu ákveða að vera saman að eilífu.

Maðurinn sagði einnig að IS samtökin, íslamska ríkið, hefðu sent hann. Hann gekk um garðinn nakinn á meðan Woodruff náði í byssuna sína. Woodruff segir að maðurinn hafi ekki orðið hræddur þegar hún dró upp byssuna sína og skaut í moldarbeð við hliðina á honum. Hún segir að hann hafi gengið að sér með útréttar hendur og sagt að hann væri tilbúinn að deyja. 

Í sjónvarpsfréttinni hér að ofan kemur fram að Woodruff vilji stíga fram til þess að benda á galla í bandaríska geðheilbrigðiskerfinu. Hún segir að margir aðrir hefðu örugglega skotið á manninn, sem er tuttugu og tveggja ára, en hún hafi séð að maðurinn væri veikur og þarfnaðist aðstoðar. Hún hafi sjálf starfað með geðfötluðum og séð að maðurinn væri augljóslega veikur. Eftir að lögreglan kom á staðinn var maðurinn sendur á geðdeild. Að sögn lögreglu verður hann handtekinn um leið og hann verður útskrifaður. Hann verður kærður fyrir dýraníð auk fleiri glæpa. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×