Kom að manni að nauðga hundinum hennar Kjartan Atli Kjartansson skrifar 28. október 2014 15:27 Kona kom fram í sjónvarpsfréttum í Bandaríkjum.
Bandarískri konu brá þegar hún gekk út úr húsi sínu í gærmorgun. Í bakgarðinum sá hún nakinn mann misnota hundin hennar, sem ber nafnið Layla og er af tegundinni Pit bull. Konan, sem heitir Alice Woodruff og býr í borginni Waterbury í Conneticut-fylki, segir frá þessu í viðtali við sjónvarpsstöðina WTNH og má sjá hér að neðan. Hún segir frá því þegar hún kom út í bakgarðinn sinn klukkan tíu í gærmorgun. Þar sá hún nakinn mann liggja undir tíkinni. „Ég hélt fyrst að hún hefði drepið manninn,“ segir Woodruff, en Layla þykir nokkuð árásagjörn. En síðan áttaði Woodruff sig á því hvað var að gerast. Hún hélt á kerti og henti því í manninn. Hún öskraði á hanni, skipaði honum að fara af hundinum. Svör mannsins voru skrýtin, hann sagði henni að þetta yrði dagurinn sem þau myndu ákveða að vera saman að eilífu. Maðurinn sagði einnig að IS samtökin, íslamska ríkið, hefðu sent hann. Hann gekk um garðinn nakinn á meðan Woodruff náði í byssuna sína. Woodruff segir að maðurinn hafi ekki orðið hræddur þegar hún dró upp byssuna sína og skaut í moldarbeð við hliðina á honum. Hún segir að hann hafi gengið að sér með útréttar hendur og sagt að hann væri tilbúinn að deyja. Í sjónvarpsfréttinni hér að ofan kemur fram að Woodruff vilji stíga fram til þess að benda á galla í bandaríska geðheilbrigðiskerfinu. Hún segir að margir aðrir hefðu örugglega skotið á manninn, sem er tuttugu og tveggja ára, en hún hafi séð að maðurinn væri veikur og þarfnaðist aðstoðar. Hún hafi sjálf starfað með geðfötluðum og séð að maðurinn væri augljóslega veikur. Eftir að lögreglan kom á staðinn var maðurinn sendur á geðdeild. Að sögn lögreglu verður hann handtekinn um leið og hann verður útskrifaður. Hann verður kærður fyrir dýraníð auk fleiri glæpa.
Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent Fleiri fréttir Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Sjá meira