Enski boltinn

Sanchez í stuði gegn Burnley

vísir/getty
Það tók sinn tíma hjá Arsenal að brjóta niður nýliða Burnley, en þeir unnu að lokum 3-0 sigur. Alexis Sanches lék á alls oddi og skoraði tvö mörk.

Heimamenn í Arsenal sóttu án afláts, en fyrsta markið kom ekki fyrr en þegar tuttugu mínútur voru eftir. Þá skoraði Alexis Sanches og varnarmaðurinn Calum Chambers bætti við marki stuttu síðar.

Sanchez var ekki hættur, en hann skoraði annað mark sitt og þriðja mark Arsenal í uppbótartíma.

Arsenal fór með sigrinum upp í fjórða sæti deildarinnar, en Burnley er á botninum enn án sigurs með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×