Öruggur sigur Everton 16. febrúar 2014 00:01 Lacina Traore fagnar fyrsta marki sínu með Everton
Everton komst á öruggan hátt í átta liða úrslit ensku bikarkeppninnar með sigri á Swansea á heimavelli. Heimamenn voru mun sterkari aðilinn í leiknum og hefði sigurinn geta orðið mun stærri en hann varð. Lacina Traore var ekki lengi að koma sér á blað hjá Everton. Hann kom liðinu yfir í sínum fyrsta leik með lúmskri hælspyrnu nálægt marki Swansea en boltinn hafði reyndar viðkomu í varnarmanni gestanna á leiðinni inn. Swansea pressaði hátt uppi á vellinum í kjölfar marksins. Pressan bar árangur á sautjándu mínútu þegar Jonathan de Guzman skoraði með laglegum skalla eftir góða sendingu frá Neil Taylor. Taylor átti svo eftir að leika hlutverk skúrksins í síðari hálfleik þegar sending hans til baka á markvörðinn Tremmel var lesin af Steven Naismith sem hirti boltann og skoraði. Naismith var þá nýkominn inná sem varamaður í stað Traore. Leikmenn Everton voru mun sterkari eftir að hafa komist yfir og gerðu harða atlögu að liði Swansea. Sú atlaga borgaði sig þegar Naismith fann leiðina inn í vítateig Swansea á nýjan leik en var stöðvaður ólöglega af Ashley Richards. Leighton Baines skoraði örugglega úr vítaspyrnunni og staðan því orðin vænleg fyrir Everton þegar tæpar tuttugu mínútur voru eftir af leiknum. Leikmenn Swansea komust ekkert áleiðis það sem eftir lifði leiks, en Everton þurfti að leika síðustu sex mínútur leiksins einum færri þar sem Naismith þurfti að yfirgefa völlinn vegna höfuðmeiðsla og Roberto Martinez hafði lokið öllum skiptingum sínum í leiknum. Það kom ekki að sök og öruggur sigur Everton staðreynd.
Enski boltinn Mest lesið Hver verður fljótastur að hlaupa míluna? Sport Skaðbrenndur Hemmi fer ekki aftur í eldhúsið Íslenski boltinn Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Íslenski boltinn ÍBV - Haukar | Oddaleikur í Eyjum Handbolti Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Enski boltinn PSG - Bayern München | Risaleikur í París Fótbolti Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Handbolti Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“ Körfubolti Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Íslenski boltinn Reglum um gul spjöld á HM verði breytt Fótbolti Fleiri fréttir Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Sjá meira