Enski boltinn

Ekki lélegt að vinna bara deildabikarinn

Toure og Milner fagna.
Toure og Milner fagna. vísir/getty
Man. City er þegar búið að vinna enska deildabikarinn og svo gæti farið að það yrði eini titill liðsins í vetur. Það væri góður árangur að mati miðjumanns liðsins, Yaya Toure.

City féll úr leik í ensku bikarkeppninni gegn Wigan og svo luku þeir keppni í Meistaradeildinni í vikunni eftir rimmu gegn Barcelona.

"Við vitum að það verður erfitt að vinna ensku deildina en þegar lið tapar leikjum þá lærir maður meira um sjálfan sig en þegar maður vinnur. Það þarf ekki alltaf að vera neikvætt að tapa," sagði Toure en City er að elta Chelsea á toppi ensku deildarinnar.

"Ég hef fulla trú á því að við getum enn unnið deildina. Við erum með liðið í það. Þetta verður ekki vonbrigðatímabil þó svo við vinnum ekki deildina. Við erum þegar búnir að vinna titil þannig að ekki halda slíku fram."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×