Newcastle upp fyrir Liverpool í töflunni - úrslit dagsins í enska Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. nóvember 2014 00:01 Newcastle-menn fagna marki Fabricio Coloccini. Vísir/Getty
Newcastle hélt sigurgöngu sinni áfram í ensku úrvalsdeildinni með 2-o útisigri á West Bromwich Albion í dag. Stoke vann á sama tíma óvæntan 2-1 sigur á Tottenham á White Hart Lane en Sunderland og Everton gerðu síðan jafntefli á Leikvangi Ljósanna í þriðja leiknum sem hófst klukkan 13.30. Newcastle hoppaði upp fyrir Liverpool í stigatöflunni og fór upp að hlið Manchester United þegar liðið landaði sínum fjórða deildarsigri í röð en það bjuggust flestir við að knattspyrnustjórinn Alan Pardew yrði rekinn eftir skelfilega byrjun liðsins. Ayoze Pérez og Fabricio Coloccini skoruðu mörk Newcastle í 2-0 sigri á WBA á The Hawthorns. Hollendingurinn Darryl Janmaat lagði upp bæði mörkin en það fyrra skoraði hinn ungi Pérez með skemmtilegri hælspyrnu fyrir utan markteig en það síðara kom eftir skalla Coloccini á fjærstöng. Newcastle náði aðeins í fjögur stig í fyrstu sjö umferðunum en hefur síðan unnið Leicester City, Tottenham Hotspur, Liverpool og svo WBA í dag. Liðið er komið með sextán stig og er því með jafnmörg stig og Manchester United og tveimur stigum meira en Liverpool. Sunderland og Everton gerðu 1-1 jafntefli á Leikvangi Ljósanna en bæði mörkin komu á síðasta hálftíma leiksins. Sebastian Larsson kom Sunderland í 1-0 með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu en Leighton Baines jafnaði níu mínútum síðar með marki úr vítaspyrnu. Everton-liðið bjargaði á línu í uppbótartíma leiksins. Stoke vann 2-1 útisigur á Tottenham á White Hart Lane þar sem að Bojan og Jonathan Walters komu Stoke-liðinu í 2-0 á fyrstu 33 mínútum leiksins. Nacer Chadli minnkaði muninn en Stoke-liðið stóðst pressuna undir lokin.Úrslit og markaskorarar í leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni:Sunderland - Everton 1-1 1-0 Sebastian Larsson (67.), 1-1 Leighton Baines, víti (76.)Tottenham - Stoke 1-2 0-1 Bojan (6.), 0-2 Jonathan Walters (33.), 1-2 Nacer Chadli (77.)West Bromwich - Newcastle 0-2 0-1 Ayoze Pérez (45.), 0-2 Fabricio Coloccini (62.)1-0 fyrir Newcastle 2-0 fyrir Newcastle 1-0 og 2-0 fyrir Stoke Tottenham minnkar muninn í 2-1
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira