Gerrard: Liverpool verður að halda Luis Suarez Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. ágúst 2013 22:23 Steven Gerrard og Luis Suarez. Mynd/NordicPhotos/Getty
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að það sé nauðsynlegt fyrir félagið að halda Úrúgvæmanninum Luis Suarez innan sinna raða en Liverpool hafnaði 40 milljón punda tilboði Arsenal í leikmanninn á dögunum. Ef að Liverpool kemst ekki hjá því að selja Luis Suarez þá vonast Gerrard eftir því að hann fari til Real Madrid eða Barcelona frekar en til annars liðs í ensku úrvalsdeildinni. „Ég hef rætt þetta oft og mörgum sinnum við Luis og auðvitað er ég að reyna að sannfæra hann um að vera áfram hjá okkur," sagði Steven Gerrard við Liverpool Echo. „Ef við missum hann þá verður þetta þeim mun erfiðara fyrir okkur í Liverpool. Það er bara svo einfalt," sagði Gerrard. „Ef náum í nokkra sterka leikmenn í viðbót og höldum Luis þá verðum við samkeppnishæfir í vetur. Það yrðu okkar bestu kaup í sumar að ná að halda Luis," sagði Gerrard. „Ef hann fer til Arsenal þá verður tímabilið vissulega miklu erfiðara fyrir okkur. Það er samt ekkert vit í því að selja hann þangað og þá skiptir engu hversu miklir peningar eru á borðinu," sagði Gerrard og bætti við: „Ég myndi skilja það ef hann væri að fara til Real Madrid eða Barcelona. Hann er frá Suður-Ameríku og það er pressa á honum frá fjölskyldunni að spila þar. Ef ég væri Luis þá myndi ég bíða eftir þessum liðum því ég veit að hann er nógu góður til að spila með Real eða Barca," sagði Gerrard.
Enski boltinn Mest lesið Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Körfubolti Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar Fótbolti Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Handbolti Fleiri fréttir Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Sjá meira