Enski boltinn

Moyes: Ég mun koma Manchester United aftur í gírinn

Mynd/NordicPhotos/Getty
David Moyes, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur ekki miklar áhyggjur af því að hann komi ekki United-liðinu á flug en Skotinn fullvissaði alla um það í viðtali eftir 1-0 sigur á Liverpool í enska deildabikarnum í gær.

Manchester United er sem stendur í áttunda sæti í úrvalsdeildinni með 7 stig af 15 mögulegum. Liðið er fimm stigum á eftir toppliðum Arsenal og Tottenham.

„Ég læt þetta ekki pirra mig. Ég mun leysa þetta. Það er enginn vafi í mínum huga um að ég muni koma Manchester United aftur í gírinn," sagði David Moyes við BBC.

Manchester United tapaði 1-4 á móti nágrönnum sínum í Manchester City í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi en með því að vinna fimm af fyrstu átta keppnisleikjum sínum sem stjóri United þá hefur hann náð bestu byrjun stjóra Manchester United síðan að Matt Busby tók við liðinu 1946.

Javier Hernandez tryggði Manchester United 1-0 sigur á Liverpool í gær.

„Þetta var stór leikur fyrir okkur því við töpuðum á móti Liverpool á Anfield sem og á móti City á Etihad á sunnudaginn. Við vildum sýna hvað við getum. Liverpool er búið að byrja tímabilið þannig að þetta eru góð úrslit," sagði Moyes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×