Ég kvarta ekki yfir tímasetningu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. desember 2013 07:00 Mætir með jákvætt hugarfar til leiks. nordicphotos/getty
Enski boltinn um helgina hefst með látum því í hádeginu tekur Man. City á móti toppliði Arsenal í stórleik helgarinnar. Arsenal er með fimm stiga forskot á toppnum en City er í fjórða sæti sex stigum á eftir Lundúnaliðinu. Þrjú stig eru því afar mikilvæg fyrir City í dag. Með sigri verður liðið aðeins þrem stigum á eftir Arsenal og galopnar toppbaráttuna í leiðinni. Það er svo sannarlega ekki verið að auðvelda verkefnið fyrir Arsenal. Liðið spilaði síðdegisleik síðasta sunnudag, var að spila á Ítalíu í Meistaradeildinni á miðvikudag og á nú hádegisleik á laugardegi. Mikel Arteta, miðjumaður Arsenal, vældi yfir þessu álagi í gær en Arsene Wenger, stjóri liðsins, lítur málið aftur á móti björtum augum. „Það er gott tækifæri fyrir okkur að byrja helgina vel og setja pressu á andstæðingana. Ég kvarta ekki yfir tímasetningu leikja og við notum það ekki sem afsökun. Vissulega er lítill tími til að æfa og í raun bara endurheimt fram að leik en þannig er það bara,“ sagði hinn jákvæði Wenger. Lið City er talsvert miklu dýrara en lið Arsenal en Wenger segir sinn hóp samt alls ekkert vera síðri. „City er með mjög sterkan hóp en þegar ég horfi á minn hóp þá öfunda ég ekki City. Við erum með fleiri skapandi og fjölhæfari leikmenn. Það er auðveldara fyrir mig að gera breytingar á liðinu. City fór aðra leið en Arsenal en okkar stefna er að skila stöðugleika og árangri.“
Enski boltinn Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Heilbrigðisráðherra lætur óvin Íslands heyra það Handbolti Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Þetta er ástæða þess að Ísland er í efsta sæti í milliriðlinum Handbolti Dregur til baka ummæli sín um Gísla Þorgeir Handbolti Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Dramatísk úrslit og vonir beggja liða nánast úr sögunni Handbolti Svíar furðu lostnir og of næs: „Létu pakka sér saman“ Handbolti Segist hafa brugðist gegn Íslandi: „Ég komst aldrei framhjá þeim“ Handbolti Fleiri fréttir Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga Sjá meira