Heimasíða Manchester United: Zaha kemur í júlí Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. janúar 2013 10:00 Wilfried Zaha. Mynd/AFP
Manchester United er búið að staðfesta það á heimasíðu sinni að félagið hafi komist að samkomulagi við Crystal Palace um að kaupa vængmanninn Wilfried Zaha. Leikmaðurinn á bara eftir að fara í gegnum læknisskoðun seinna í dag. „Við munum ekki ræða þetta mál frekar fyrr en að Wilfried gerist leikmaður Manchester United í júlí 2013," segir ennfremur á heimasíðu Manchester United en Wilfried Zaha tjáir sig aftur á móti um nýja félagið sitt á heimasíðu Crystal Palace. „Ég er mjög ánægður með að komast til Manchester United og það er gott að binda enda á allar getgáturnar. Ég vil þakka eigendum Palace fyrir að gera þetta mögulegt en næstu fimm mánuði mun ég einbeita mér eingöngu að Crystal Palace," sagði Wilfried Zaha en United lánar hann aftur til Crystal Palace fram á vor. Hinn tvítugi Wilfried Zaha er með 5 mörk og 6 stoðsendingar í 27 leikjum með Crystal Palace í ensku b-deildinni á þessu tímabili en 9 af þessum 11 mörkum sem hann hefur átt þátt í komu fyrir 12. nóvember eða fram að því að hann spilaði sinn fyrsta landsleik á móti Svíum. „Ég hef verið hjá Palace í meira en tíu ár. Ég mun alltaf elska félagið og ég vil hjálpa til að koma Palace aftur upp í ensku úrvalsdeildina ekki síst fyrir stuðningsmennina sem hafa verið mér svo góðir," sagði Zaha.
Enski boltinn Mest lesið Fimm ástæður þess að Ísland falli strax út á EM Fótbolti Sex leikmenn Íslands í lyfjapróf Fótbolti Nýi þjálfarinn spilar öðruvísi og Orri verður aðalframherjinn Fótbolti EM í dag: Hitabylgja og hrakfarir við komuna til Thun Fótbolti Rúnar Alex brákaði bein á fyrstu æfingunni Fótbolti Æfir í Dublin en fer fyrr til New Orleans „að venjast hitanum og rakanum“ Sport Sjáðu tvennur Eiðs og Nikolaj, aukaspyrnu Kjartans og öll hin mörkin Íslenski boltinn Bandaríkin áfram en Kanada úr leik eftir vítaspyrnukeppni Fótbolti „Ég er mjög sátt og þið verðið bara að bíða spennt“ Fótbolti Karólína Lea sögð skrifa undir hjá Inter á næstu dögum Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Sjá meira