Franska byltingin byrjuð í Newcastle | Öll úrslit dagsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. febrúar 2013 14:27
Moussa Sissoko var hetja Newcastle sem vann 3-2 sigur á Chelsea. Arsenal og West Ham unnu sína leiki en öðrum lyktaði með jafntefli. Sissoko er einn fjölmargra Frakka sem Newcastle hefur keypt til félagsins að undanförnu og hann sló heldur betur í gegn í sínum fyrsta leik á St. James' Park í dag. Jonas Gutierrez hafði komið Newcastle yfir í lok fyrri hálfleiks en þeir Frank Lampard og Juan Mata komu Chelsea yfir, 2-1, með tveimur glæsilegum mörkum í upphafi síðari hálfleiks. En þá tók Sissoko til sinna mála. Hann jafnaði metin á 68. mínútu og tryggði svo Newcastle sigur með marki í blálok leiksins. Hann skoraði með hnitmiðuðu skoti rétt utan vítateigs. Demba Ba, fyrrum leikmaður Newcastle, var í byrjunarliði Chelsea í dag en varð að fara af velli í fyrri hálfleik eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg en Fabricio Coloccini sparkaði í andlit hans. Arsenal vann Stoke, 1-0, með marki Lukas Podolski úr aukaspyrnu. Skotið breytti hins vegar um stefnu á varnarmanni og kom Asmir Begovic, markvörður Stoke, því engum vörnum við. Begovic hafði fram að því haldið sínum mönnum á floti í leiknum þar til að Podolski skoraði á 78. mínútu. Aston Villa komst í 3-1 forystu gegn Everton en Marouane Fellaini skoraði þá tvívegis fyrir Everton og bjargaði stigi fyrir sína menn. Jöfnunarmark hans kom í uppbótartíma. Reading vann mikilvægan sigur í fallbaráttunni er liðið hafði betur gegn Sunderland, 2-1. Jimmy Kebe skoraði bæði mörk Reading í leiknum. Þá var Andy Carroll hetja West Ham en hann skoraði eina mark leiksins í igri á Swansea. Þetta var hans fyrsti leikur í byrjunarliði í nóvember. Að síðustu gerðu Wigan og Southampton 2-2 jafntefli í fallbaráttuslag. Shaun Maloney skoraði jöfnunarmark Wigan á 89. mínútu. Smelltu á leikina hér fyrir neðan til að sjá alla markaskorara.
Enski boltinn Mest lesið Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Fótbolti Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Fótbolti Myndi taka kúlu fyrir Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Sjá meira