Enski boltinn

Allir níu leikirnir í enska sýndir beint í kvöld

Aaron Ramsey og félagar í Arsenal fagna.
Aaron Ramsey og félagar í Arsenal fagna. Nordicphotos/getty
Alls fara níu leikir fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en knattspyrnuáhugamenn hér á landi eru í þeirri einstöku aðstöðu að geta valið á milli þeirra allra. Tveir þeirra eru sýndir í ólæstri dagskrá.

„Við eigum rétt á að sýna alla leikina í beinni útsendingu og við viljum gera allt sem við getum til að nýta það,“ sagði Hjörvar Hafliðason, dagskrárstjóri Stöðvar 2 Sports.

„Það gefur augaleið að við eigum ekki nógu margar hliðarrásir á sportinu til að sýna alla leikina og því fáum við aðstoð til að geta boðið upp á alla leikina. Arsenal, besta liðið á Englandi í dag, verður til að mynda í ólæstri útsendingu á Stöð 3 og einn leikur verður einnig sýndur á Vísi,“ segir Hjörvar en bendir á að aðeins þeir sem eru staddir á Íslandi geta horft á leikinn á Vísi.

Þá verður viðureign Swansea og Newcastle sýnd á Chelsea TV en sú rás er opin öllum áskrifendum Stöðvar 2 Sports.

Hjörvar segir spennandi tíma framundan í desembermánuði í ensku úrvalsdeildinni. „Fyrir mér hefur deildin aldrei verið jafn spennandi. Það sést best á því að liðin sem eru í 8. [Manchester United] og 9. sæti [Tottenham] eiga enn möguleika á meistaratitlinum.“

Leikirnir í kvöld:

19.45: Sunderland - Chelsea á Stöð 2 Sport HD

19.45: Manchester United - Everton á Stöð 2 Sport 2 HD

19.45: Liverpool - Norwich á Stöð 2 Sport 3

20.00: Fulham - Tottenham á Stöð 2 Sport 4

20.00: WBA - Manchester City á Stöð 2 Sport 5

19.45: Stoke - Cardiff á Stöð 2 Sport 6

19.45: Arsenal - Hull á Stöð 3 (ólæst dagskrá)

19.45: Swansea - Newcastle á Chelsea TV

19.45: Southampton - Aston Villa á Vísi.is (aðeins á Íslandi)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×