Fundu kviku undir Suðurskauti Brjánn Jónasson skrifar 20. nóvember 2013 07:15 Óvíst er hversu mikið yfirborð heimshafanna gæti hækkað ef eldgos hefst undir íshellunni, en sérfræðingur NASA telur að bráðnunin muni hafa lítil áhrif. Fréttablaðið/AP
Jarðvísindamenn hafa staðfest tilvist kvikuhólfs undir Suðurskautslandinu. Þeir óttast að komi til eldgoss undir kílómetra þykkri íshellunni gæti það valdið svo mikilli bráðnun íss að yfirborð sjávar gæti hækkað. Kvikuhólfið liggur undir endanum á fjallahrygg sem ber hið einkennilega nafn Framkvæmdastjórnarfjöll (e. Executive Committee Range), að því er fram kemur í umfjöllun vísindaritsins Science. Fjöllin sem mynda fjallgarðinn eru grafin undir ísnum, og eru fjöllin því yngri sem sunnar dregur. Elsta fjallið er talið hafa myndast fyrir 13,2 til 13,7 milljónum ára, en það yngsta myndaðist á síðustu milljón árum. Talið er að síðast hafi gosið á hryggnum fyrir um 8 þúsund árum. Mælingar vísindamanna á jarðhræringum á Suðurskautslandinu leiddu í ljós að kvikuhólf er að finna á 25 til 40 kílómetra dýpi. Mælingarnar sýna að jarðhræringunum svipar til hræringa við virk eldfjöll á Havaí Aðeins risavaxið eldgos gæti orðið til þess að bræða kílómeters þykkan ísinn sem liggur yfir yfirborði jarðar þar sem kvikuhólfið kraumar undir. Minni gos gætu þó brætt gríðarlegt magn af ís, og þar með hækkað yfirborð sjávar. Ómögulegt er að spá fyrir um hversu mikil slík hækkun gæti orðið, en líklega yrði hún minniháttar að mati Robert Bindschadler, jöklafræðings hjá NASA, bandarísku geimferðastofnunarinnar.
Mest lesið Kalli Snæ biðst afsökunar Innlent Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Innlent Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Innlent Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Innlent Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Innlent Tilfinning hægri manna um að fréttir RÚV séu óháðar fer dvínandi Innlent Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Veður Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Erlent Fleiri fréttir Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf Frestar aftur TikTok-banni Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Áhlaup ICE og óvissan veldur vandræðum Farið í gegnum „kolefnisþakið“ eftir þrjú ár Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Geimskipið sprakk á jörðu niðri Finnar draga sig út úr sáttmála gegn jarðsprengjum Leita „fjandskapar“ á samfélagsmiðlum námsmanna Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Staðfesta bann á meðferð trans barna Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“ Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar „Kannski geri ég það, kannski geri ég það ekki“ Færðu barn heiladauðrar konu í heiminn Rekja rafmagnsleysið á Íberíuskaga til mistaka orkufyrirtækja Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Sænsk „sorpdrottning“ hlaut þungan fangelsisdóm fyrir umhverfisbrot Tugir drepnir á meðan þau biðu eftir matarskammti Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Færeyingar vilja fullveldi Trump fundar með þjóðaröryggisráði Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax „Erum að horfa á eitthvað betra en vopnahlé“ Drápu tugi sem biðu þess að fá mat Læknir játar að hafa gefið Perry ketamín Sjá meira