Enski boltinn

Loksins tóku stuðningsmenn United ástfóstri við Belga

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eftir vandræðalegt tap á heimavelli gegn West Brom og marki undir gegn Sunderland var Manchester United í vandræðalegri stöðu á Ljósvangi.

Enn hafði ekki kviknað í United fyrir alvöru í deildinni og nýi stjórinn David Moyes í leit að neista. Á sex mínútum breyttist allt.

Belgíski táningurinn Adnan Januzaj fékk tækifæri í byrjunarliðinu í fyrsta skipti og þakkaði fyrir sig með tveimur mörkum. Skyldusigurinn á botnliðinu vannst og milljónir stuðningsmanna United um allan heim höfðu loks ástæðu til að vera spenntir.

„Ég man eftir því þegar ég gaf Wayne Rooney tækifærið í fyrsta skipti hjá Everton. Adnan er svo sannarlega í sama gæðaflokki,“ sagði knattspyrnustjórinn skoski.

Vera má að Januzaj hafi létt pressunni á Moyes en hann jók hana um leið. Samningur Belgans átján ára við Englandsmeistarana rennur út í vor og má telja líklegt að umboðsmaður Januzaj hafi opnað kampavínsflösku á laugardagskvöldið.

United missti Frakkann Paul Pogba til Juventus á sínum tíma. Sá hefur slegið í gegn á Ítalíu og er orðinn burðarás í landsliði Frakka. Stuðningsmenn rauðklæddra vilja ekki missa Januzaj í hendur annarra stórliða í Evrópu.

Segja má að tími hafi verið kominn til þess að Belgi stimplaði sig inn hjá Manchester United. Reiknað var með því að Marouane Fellaini yrði fyrri til en táningurinn en svo fór aldeilis ekki. Fjölmargir hafa sett spurningarmerki við miðjumanninn hárprúða og velt fyrir sér hvort hann hafi gæðin sem þarf á miðju United. Þeirri spurningu er ósvarað. Fellaini var frá keppni vegna meiðsla á laugardaginn en virtist ekki saknað. Landi hans var og er maður augnabliksins.

Auk óvissu með framtíð Januzaj hjá United er óvíst hvaða þjóð mun njóta góðs af þjónustu hans á landsliðssviðinu. Kantmaðurinn, sem kom frá Anderlecht árið 2011, getur valið milli þess að spila fyrir Belga og Albaníu, en foreldrar hans eru þaðan. Þá gætu Englendingar reynt að freista Januzaj á grundvelli þess hve ungur hann var þegar hann flutti til Englands. Ljóst er að enskir gætu nýtt sér jafnleikinn leikmann og Januzaj þótt fyrri þjóðirnar tvær séu mun líklegri lendingarstaður.

Vincent Kompany er lykilmaður í liði Manchester City.Nordicphotos/Getty
Belgar á mála hjá ensku félögunum

Arsenal


Thomas Vermaaelen

Tottenham Hotspur

Moussa Dembele, Jan Vertongen, Nacer Chadli

Chelsea

Edin Hazard, Kevin De Bruyne

Manchester City

Vincent Kompany

Liverpool

Simon Mignolet

Aston Villa

Christian Benteke

Manchester United

Marouane Fellaini, Adnan Januzaj

Everton

Kevin Mirallas, Romelu Lukaku (í láni frá Chelsea)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×