Erlent

Hætta að taka líffæri úr föngum

Þórunn Elísabet Bogadóttir skrifar
Mynd/AP

Kínversk stjórnvöld vilja reyna að hætta alfarið að nota líffæri úr látnum föngum á næstu árum og hafa hafið aðgerðir til að ná fram breytingum.

Nánast allar líffæragjafir koma frá föngum sem eru teknir af lífi. Öðru fólki sem velur að gefa líffæri fjölgar, en það gerist þó hægt. Nú er líffæragjafakerfi landsins þannig að fjölskyldur þurfa að gefa leyfi sitt fyrir líffæragjöf, jafnvel þótt gjafinn hafi veitt leyfi sitt.

Fyrrverandi heilbrigðisráðherra landsins, Huang Jiefu, segist þó telja litlar líkur á því að kerfið breytist í bráð, en Huang er hönnuður kerfisins. Hefðin í landinu sé sú að fjölskyldan sé sterkari einstaklingnum. Mótmæli frá jafnvel aðeins einum fjölskyldumeðlimi gætu komið í veg fyrir líffæragjöf.

Huang segir þó að honum þyki núverandi kerfi drifið áfram af gróðavon. Það sé bæði ósiðlegt og brjóti gegn mannréttindum. Gagnrýnendur þessa fyrirkomulags hafa löngum sagt að fyllsta öryggis sé ekki gætt í þessum málum, og fangar séu oft beittir óeðlilegum þrýstingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×