Fótbolti

Galdramaðurinn Gylfi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Ljubljana skrifar
Tvö stórkostleg mörk Gylfi Þór Sigurðsson hefur skorað sigurmarkið í síðustu tveimur útileikjum íslenska liðsins en hér fagnar hann öðru marka sinna í gær ásamt landsliðsfyirliðanum Aroni Einari Gunnarssyni.Mynd/AP
Tvö stórkostleg mörk Gylfi Þór Sigurðsson hefur skorað sigurmarkið í síðustu tveimur útileikjum íslenska liðsins en hér fagnar hann öðru marka sinna í gær ásamt landsliðsfyirliðanum Aroni Einari Gunnarssyni.Mynd/AP
Gylfi Þór Sigurðsson töfraði fram tvö glæsileg mörk sem dugðu til að tryggja Íslandi 2-1 sigur á Slóveníu í Ljubljana í gær. Það var reyndar fátt sem benti til sigurs eftir slakan fyrri hálfleik en Íslandi spilaði vel úr sínu í þeim síðari.

Milivoje Novakovic færði sér hik í íslensku vörninni í nyt þegar hann kom heimamönnum yfir í gær en Gylfi jafnaði metin með stórglæsilegri aukaspyrnu snemma í síðari hálfleik og innsiglaði svo sigurinn á 78. mínútu eftir góðan undirbúnings varamannsins Eiðs Smára Guðjohnsen.

„Þetta var góð tilfinning, sérstaklega eftir slappan leik af okkar hálfu. Við náðum aldrei boltanum niður og að komast í þann venjulega gír sem við viljum vera í. En þetta var erfiður leikur og sérstaklega gott að hafa unnið hann á útivelli," sagði Gylfi, sem neitar því ekki að aukaspyrnumarkið hafi verið eitt hans besta á ferlinum til þessa.

„Þetta var frekar langt frá og gaman að sjá hann í skeytunum. Kolli var eitthvað að gera sig líklegan til að taka spyrnuna en það kom ekki til greina," sagði hann brosandi.

„Það var svo jafnvel enn sætara að skora síðara markið og halda forystunni til loka. Við vörðumst allir vel síðustu 15-20 mínúturnar og Hannes tók 5-6 erfiða bolta. Hann á mikið hrós skilið, eins og allir í liðinu."

Lars Lagerbäck var ekki ánægður með frammistöðu Íslands í fyrri hálfleik. Hann ákvað að breyta til með því að setja Jóhann Berg Guðmundsson inn á fyrir Alfreð Finnbogason og setja Gylfa Þór fremstan með Kolbeini. Enda hafði lítið komið út úr Gylfa á kantinum, eins og fleirum í íslenska liðinu.

„Gylfi er sífellt á hreyfingu og ég vildi fá hann framar á völlinn og betur inn í leikinn," sagði Lagerbäck. „Jóhann hafði líka staðið sig vel gegn Rússlandi enda með mikinn hraða og er öflugur í návígjum. Þetta tvær breytingar gengu eftir."

Hann hrósaði svo öllu liðinu fyrir viðsnúninginn í seinni hálfleik. „Allt liðið sýndi annað og betra viðhorf í seinni hálfleik og það skipti mestu. Svo erum við með leikmann eins og Gylfa sem skoraði tvö frábær mörk. Það er alltaf hægt að vinna leiki með slíka leikmenn."

Ísland komst mjög vel frá leiknum í gær, sérstaklega miðað við slakan fyrri hálfleik. Það gerir sigurinn enn sætari fyrir vikið. Ísland er nú í lykilstöðu í riðlinum og með þessu áframhaldi eru spennandi tímar í vændum fyrir íslenska knattspyrnuáhugamenn.


Tengdar fréttir

Gylfi og Jóhann Berg í banni í næsta leik

Gylfi Þór Sigurðsson, hetja íslenska liðsins í sigrinum á Slóveníu í kvöld, verður ekki með íslenska liðinu í næsta leik sem er á móti Slóveníu á Laugardalsvellinum í júní. Gylfi Þór fékk gult spjald eins og Jóhann Berg Guðmundsson og eru þeir báðir komnir í bann.

Kolbeinn: Ég á að nýta svona færi

Kolbeinn Sigþórsson var kátur eftir leik Íslands og Slóveníu í gær en strákarnir unnu þá góðan 2-1 sigur eftir slakan fyrri hálfleik.

Gylfi: Sá hann í skeytunum

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði mark í heimsklassa þegar hann jafnaði metin í leik Íslands og Slóveníu í kvöld. Leiknum lyktaði með sigri, 2-1, og skoraði Gylfi bæði mörkin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×