Rush varar Bale við því að fara frá Englandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2013 13:45 Gareth Bale. Mynd/AFP
Ian Rush, landi Gareth Bale og fyrrum markakóngur Liverpool, segir að Gareth Bale verði að hugsa sig vel um áður en hann ákveður að yfirgefa ensku úrvalsdeildina. Fjölmiðlar hafa orðað Wales-manninn við spænsku risana Real Madrid og Barcelona. Ian Rush fór á hátindi ferils síns frá Liverpool til ítalska liðsins Juventus en kom fljótt til baka eftir að lítið gekk hjá honum í ítalska boltanum. „Þetta verður að vera eitthvað sem hann er mjög ánægður með. Hann mun læra mikið af því að fara út en verður hann ánægður," segir Ian Rush í viðtali við BBC. Rush fór til Ítalíu sem einn af mestu markaskorurunum í Evrópu (30 mörk í 42 leikjum tímabilið á undan) en skoraði bara 7 mörk í 29 leikjum í ítölsku deildinni áður og snéri aftur til Liverpool árið eftir. „Þetta var mikið menningarsjokk fyrir mig. Það er auðveldara í dag en fyrir tuttugu árum en Gareth verður að finna sér stað þar sem hann er sáttur. Þegar þú ert ekki ánægður þá spilar þú ekki þinn besta bolta," sagði Ian Rush. „Hann er ánægður hjá Spurs og það skiptir mestu máli," sagði Rush en Gareth Bale skoraði bæði mörk Tottenham um síðustu helgi og er nú kominn upp í 19 mörk. „Tilboðin munu berast hvort sem Tottenham kemst í Meistaradeildina eða ekki. Ef Gareth vill fara þá tekur hann ákvörðunina með ráðgjöfum sínum. Það reynir á Spurs í sumar að bjóða honum framtíðarsamning," sagði Rush. „Ef Gareth hefur metnað fyrir því að vinna titla þá á hann mun betri möguleika á því með liðum eins og Barcelona, Manchester United eða Real Madrid. Tottenham er ekki nálægt því að vinna ensku deildina eða Meistaradeildina," sagði Rush.
Enski boltinn Mest lesið Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira