Enski boltinn

Sterkasti leikmaður heims samkvæmt FIFA 14 | Myndir

Akinfenwa er hrikalegur.
Akinfenwa er hrikalegur.
Adebayo Akinfenwa er ekki þekktasti knattspyrnumaður heims en margir knattspyrnuáhugamenn vita þó vel hver hann. Skal engan undra enda lítur hann frekar út fyrir að vera kraftlyftingamaður en knattspyrnumaður.

Akinfenwa er 31 árs gamall og leikur með liði Gillingham. Hann er framherji og er búinn að skora tvö mörk í fimm leikjum í vetur. Áður var hann hjá Northampton þar sem hann skoraði 34 mörk í 80 leikjum.

Akinfenwa er í skýjunum þessa dagana þar sem hann hefur fengið það staðfest frá tölvuleikjaframleiðandanum EA Sports að hann sé sterkasti leikmaður heims í tölvuleiknum FIFA 14.

"Þeir tístu á mig og létu mig vita af þessu. Þetta er mikill heiður. Ég fékk 97 af 100 í styrk," sagði Akinfenwa.

Uppáhald Íslendinga, George Elokobi, fékk 95 af hundrað í leiknum og er þriðji sterkasti leikmaður heims samkvæmt tölvuleiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×