Mancini: Balotelli var mér eins og sonur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. janúar 2013 10:45 Nordic Photos / Getty Images
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, segist afar leiður yfir brotthvarfi Mario Balotelli en talið er að hann muni semja við AC Milan í dag. Þetta sagði hann eftir leik City gegn QPR í ensku úrvalsdeildinni í gær. Balotelli hefur verið hjá City í tvö og hálft ár en margoft komið sér í fréttir fyrir hin ýmsu uppátæki sín, bæði innan vallar sem utan. Svo virðist sem að átök þeirra Balotelli og Mancini á æfingasvæði City í upphafi mánaðarins hafi gert útslagið fyrir Mancini og forráðamenn City - þó svo að hann hafi ekki viljað viðurkenna það opinberlega. „Við erum allir svo leiðir vegna þess að Mario var mikilvægur leikmaður fyrir okkur," sagði Mancini við enska fjölmiðla. „Við unnum ensku úrvalsdeildina og enska bikarinn með Mario. En þetta er mikilvægt tækifæri fyrir hann - að komast aftur til Ítalíu og spila fyrir stórt félag í Mílanó. Hann fær nú tækifæri til að vera með fjölskyldu sinni á ný." „Ég held að hann geti bætt sig og ég yrði ánægður með ef hann yrði einn daginn einn af bestu knattspyrnumönnum heims," bætti Mancini við. „Mario var mér eins og sonur. Ég gaf honum sitt fyrsta tækifæri í ítölsku deildinni þegar hann var sautján ára gamall. Stundum getur maður verið í uppnámi vegna hans en eftir það er hann mjög indæll drengur. Ég hef gefið öllum mínum leikmönnum mikinn tíma en kannski hefur Mario fengið meira en aðrir." „Mario skoraði mörg mikilvæg mörk gegn City, eins og gegn United á útivelli. Hann stóð sig vel. Við munum allir sakna hans og leikmennirnir voru mjög leiðir þegar hann fór frá hótelinu. Mario er góður drengur."
Enski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira