Snertingar Skrtel breyttu öllu | Myndband Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. desember 2013 00:01
Glæsimark Steven Gerrard var eina sárabótin fyrir Liverpool í 3-1 tapi gegn Hull í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Jake Livermore kom Hull yfir á 20. mínútu þegar sakleysislegt skot utan af velli fór af Martin Skrtel og yfir Simon Mignolet í marki Liverpool. Stuðningsmenn Hull ærðust enda hafði liðið verið öllu lakari aðilinn í leiknum þegar þarna var komið við sögu. Liverpool fékk aukaspyrnu rétt utan teigs skömmu síðar. Steven Gerrard nýtti sér öryggisleysi Alan McGregor í marki heimanna. Spyrnan var þéttingsföst í markmannshornið og McGregor hafði ekki einu sinni hönd á bolta. Jafnt var 1-1 í hálfleik og það var ekki fyrr en á 72. mínút að David Meyler skoraði með föstu vinstri fótarskoti innan teigs. Vörn Liverpool mistókst að hreinsa boltann í burtu og Írinn í liði Hull nýtti sér það. Tom Huddlestone, sem Hull fékk frá Tottenham í ágúst líkt og Livermore, lét svo vaða á mark gestanna þremur mínútum fyrir leikslok. Aftur varð Slóvakinn Skrtel fyrir því óláni að stýra boltanum í netið með snertingu sinni. Stuðningsmenn Hull og Arsenal fögnuðu vel í leikslok. Hull er komið í 10. sæti deildarinnar með 17 stig og Arsenal heldur nú sjö stiga forskoti á toppi deildarinnar. Liverpool féll við tapið niður í þriðja sæti deildarinnar. Liðið hefur lakari markatölu en Chelsea sem tekur á móti Southampton í dag.
Enski boltinn Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Handbolti Fleiri fréttir Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Sjá meira