Enski boltinn

Engin vitleysa hjá Poyet

Gus Poyet.
Gus Poyet.
Jólapartí enskra knattspyrnufélaga hafa oftar en ekki ratað í blöðin á undanförnum árum enda hafa mörg þeirra farið algjörlega úr böndunum.

Félög hafa því síðustu ár reynt að draga úr látunum og bjóða upp á lágstemmdari stemningu.

Gus Poyet, stjóri Sunderland, tók ekki í mál að leyfa sínum mönnum að missa sig í gleðinni enda kallar staða þeirra í deildinni á að menn haldi sér á tánum.

"Hvað er að því að fara út að borða, fá sér nokkra drykki og fara svo að sofa? Nákvæmlega ekki neitt," sagði Poyet.

Leikmenn liðsins eru örugglega fegnir að fá í það minnsta aðeins að lyfta sér upp því nokkur félög hafa einfaldlega slegið þennan sið af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×