Enski boltinn

Messan: Eina framherjaskrímsli Chelsea er í láni

Framherjar Chelsea eru bara búnir að skora 4 af 30 mörkum Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Logi Bergmann Eiðsson sá um Messuna þessa vikuna í forföllum Gumma Ben og fór yfir markahallæri sóknarmanna Chelsea á þessu tímabili með þeim Hjörvari Hafliðasyni og Bjarna Guðjónssyni.

„Chelsea er búið að skora 30 mörk í úrvalsdeildinni. Þrír senterar, Ba, Eto'o og Torres, sem eru ekki ókeypis senterar, eru samtals búnir að skora fjögur mörk," byrjaði Logi Bergmann Eiðsson umfjöllun þeirra félaga um framherja Chelsea-liðsins.

„Það er nú bara grín. Arsenal, Liverpool, Manchester United og Manchester City eru öll með menn sem eru að skora helling af mörkum. Þetta er dreifast svakalega hjá Chelsea og það er enginn afgerandi markaskorari. Þegar þetta gekk hvað best hjá Mourinho þá var hann með skrímsli þarna frammi sem heitir Didier Drogba," sagði Hjörvar.

Bjarni Guðjónsson greip þá inní. „Hann er með skrímsli núna en hann er bara í láni hjá Everton," sagði Bjarni og átti þá við Romelu Lukaku hjá Everton sem er búinn að skora 8 mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

„Ég get líka bætt við þetta því þessir þrír eru ekki búnir að skora á útivelli í 19 leikjum í röð," sagði Bjarni.

Það er hægt að sjá alla umræðuna um framherjana hjá Chelsea með því að smella hér fyrir ofan.

Mynd/NordicPhotos/Getty
Mynd/NordicPhotos/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×