Átök í Istanbúl Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 1. júní 2013 12:41 Þessi kona ræðir hér við lögreglumenn í höfuðborginni Instanbúl í morgun, Mynd/afp
Mótmælendur og lögregla tókust á í Istanbúl í Tyrklandi í nótt, annan daginn í röð, eftir að mótmæli fóru úr böndunum í gær. Hátt í hundrað manns þurftu á aðhlynningu að halda eftir átökin og um sextíu manns eru í haldi lögreglu. Það sló í brýnu milli mótmælenda og lögreglu í gær. Þá höfðu mótmælendurnir safnast saman við Gezi listigarðinn í hjarta Istanbúl, stærstu borg Tyrklands. Mótmælin snéru að fyrirhugaðri uppbyggingu í og við garðinn. Það sauð upp úr eftir að lögregla beitti táragasi. Átök hafa borist til annarra borga í nágrenni við Istanbúl og eru afar fjölmenn og hefur óeirðarlögregla verið kölluð út. Þá var táragasi beitt í stórborginni Ankara þar sem mótmælendur höfðu safnast saman. Yfirvöld í Bandaríkjunum og víðar hafa fordæmt viðbrögð stjórnvalda í Tyrklandi við mótmælunum. Talsmaður Bandaríkjastjórnar sagði þau ekki til þess fallin að tryggja stöðuleika og tjáningarfrelsi í landinu. Þó svo að tilefni mótmælanna hafi verið uppbygging við Gezi listigarðinn þá virðist viss spenna hafa losnað úr læðingi meðal ungs fólks í garð yfirvalda í Tyrklandi. Frá því að Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra, komst til valda árið 2002 hefur hann verið harðlega gagnrýndur fyrir stjórnarhætti sína. Recep lýsti því yfir í gærkvöldi að framkvæmdir við listigarðinn myndu halda áfram og að viðbúnaður lögreglu yrði efldur.
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Fleiri fréttir Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Sjá meira