Enski boltinn

Curbishley snýr aftur í enska boltann

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Alan Curbishley þegar hann stýrði West Ham
Alan Curbishley þegar hann stýrði West Ham Mynd/Gettyimages
Alan Curbishley, fyrrverandi knattspyrnustjóri Charlton og West Ham hefur verið ráðinn sem tæknilegur ráðgjafi aðalliðs Fulham. Curbishley mun vinna með René Meulensteen, knattspyrnustjóra Fulham að því að halda sæti Fulham í ensku úrvalsdeildinni.

Curbishley hefur ekki sinnt starfi við enska boltann síðan hann sagði upp í ósætti við stjórnendur hjá West Ham árið 2008 þegar West Ham var í eigu Íslendinga. Áður fyrr var hann framkvæmdarstjóri Charlton í ellefu ár frá árinu 1991 og stýrði hann liðinu í 729 leikjum til ársins 2006, einum leik færra en félagsmetið hjá Charlton.

Curbishley mun vera Meulensteen innan handar í von um að tryggja sæti Fulham í ensku úrvalsdeildinni fjórtánda árið í röð. Meulensteen tók við af Martin Jol í upphafi desember en hann var áður aðstoðarþjálfari undir stjórn Sir Alex Ferguson ásamt því að stjórna Anzhi Makhachkala í 16 daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×