Enski boltinn

Moyes mætir sínu gamla félagi | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Níu leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en þá kemur í ljós hvort að Arsenal nær að halda fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar.

Arsenal mætir Hull á heimavelli en ríkjandi meistarar, Manchester United, fá Everton í heimsókn. David Moyes, stjóri United, mætir þar sínu gamla félagi í fyrsta sinn.

Chelsea mætir botnliði Sunderland og Liverpool leikur gegn Norwich á heimavelli sínum en í spilaranum hér fyrir ofan má sjá stutta upphitun fyrir alla leiki kvöldsins.

Allir níu leikir kvöldsins eru sýndir beint en hér má lesa nánar um það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×