Enski boltinn

Sigur hjá Kára en tap hjá Birni Bergmann

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kári Árnason ásamt leikmönnum úr gullaldarliði Rotherham frá árinu 1961.
Kári Árnason ásamt leikmönnum úr gullaldarliði Rotherham frá árinu 1961. Mynd/Heimasíða Rotherham
Kári Árnason og félagar hjá Rotherham eru komnir í sjötta sæti ensku c-deildarinnar eftir 4-1 heimasigur á Gillingham í dag. Kári spilaði í hjarta varnarinnar venju samkvæmt hjá þeim rauðklæddu.

Rotherham er taplaust í síðustu sjö leikjum sínum og útlitið ágætt. Sjötta sætið er hið síðasta sem gefur sæti í úrslitakeppninni í lok tímabils en nóg er nú eftir af deildinni.

Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á sem varamaður hjá Wolfes sem tapaði 1-0 á útivelli gegn Peterborough. Skagamaðurinn, sem vill komast burtu frá Úlfunum í janúarglugganum, fékk gult spjald skömmu eftir að hafa komið inn á.

Wolves, sem féll úr b-deildinni í fyrra, er í öðru sæti deildarinnar með jafnmörg stig og topplið Leyton Orient en lakara markahlutfall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×