Fyrsti sigur Newcastle á Old Trafford í 41 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2013 12:15 Yohan Cabaye fagnar sigurmarki sínu. Mynd/AFP
Newcastle sótti þrjú stig á Old Trafford í fyrsta sinn síðan 1972 þegar liðið vann 1-0 sigur á Manchester United í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Frakkinn Yohan Cabaye skoraði eina mark leiksins eftir rúmlega klukkutíma leik. Manchester United tapaði þarna sínum öðrum heimaleik á fjórum dögum en United hafði ekki tapað tveimur deildarleikjum í röð á Old Trafford síðan 2002. United-liðið hefur nú tapað þrettán stigum í fyrstu átta heimaleikjum sínum undir stjórn David Moyes og það lítur út fyrir að liðið sé búið að missa af lestinni í baráttunni um enska meistaratitilinn. Newcastle-liðið fagnaði þarna frábærum sigri en liðið átti frábæran nóvember-mánuð og reif sig upp í dag eftir 3-0 tap á móti Swansea í vikunni. Robin van Persie lék sinn fyrsta leik í langan tíma en náði ekki á strik og þá var Manchester United liðið án Wayne Rooney sem tók út leikbann. Fyrri hálfleikurinn var í daufara lagi en Manchester United byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti og fékk tækifæri til að komast yfir á upphafsmínútum hans. Tim Krul varði vel frá bæði Javier Hernandez og Adnan Januzaj og svo bjargaði Vurnon Anita á marklínunni eftir skalla Patrice Evra. Þegar betur var á gáð þá fór boltinn í hönd Anita og United-liðið átti því að fá vítaspyrnu. Það voru hinsvegar leikmenn Newcastle sem komu boltanum í markið þegar Yohan Cabaye skoraði með skoti úr teignum á 61. mínútu eftir flottan undirbúning Moussa Sissoko. Robin van Persie jafnaði metin með skalla á 72. mínútu en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Manchester United ógnaði lítið í lokin og það var mjög skrýtið að horfa upp á andleysi leikmanna liðsins á lokakafla leiksins.
Enski boltinn Mest lesið Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Körfubolti Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Fótbolti Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Tvíburar héldu sínum liðum á lífi Körfubolti Fleiri fréttir Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Sjá meira