Önnur prófraun fyrir Martinez Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. desember 2013 07:00 Roberto Martinez hefur aðeins tapað einum deildarleik á tímabilinu.
Roberto Martinez og lið hans, Everton, freistar þess um helgina að fylgja eftir góðum útivallarsigri á Manchester United í vikunni með því að leggja topplið Arsenal í Lundúnum. Everton er eina lið deildarinnar sem hefur tapað færri leikjum á tímabilinu en Arsenal og er nú taplaust í rúma tvo mánuði. Arsenal vann 2-0 sigur á Hull í vikunni en Daninn Nicklas Bendtner skoraði fyrra mark leiksins í sínum fyrsta leik í byrjunarliði í rúm tvö ár. Olivier Giroud er þó klár í slaginn á ný eftir að hann var hvíldur í vikunni og því líklegt að Bendtner þurfi að bíða færis á bekknum á morgun. Boltaveisla helgarinnar byrjar í hádeginu í dag þegar að Manchester United tekur á móti Newcastle. Bæði lið töpuðu í vikunni og mistókst því að koma sér í hóp sex efstu liða deildarinnar. Liðin mega varla við því að gefa meira eftir í toppbaráttunni og því mikið undir í dag. Chelsea og Manchester City, næstu lið á eftir Arsenal, eiga þá bæði erfiða útleiki fyrir höndum. Liverpool tekur á móti West Ham á heimavelli þar sem augu flestra munu sjálfsagt beinast að framherjanum Luis Suarez sem skoraði fjögur mörk og lagði það fimmta upp í 5-1 sigri sinna manna á Norwich í vikunni. Tottenham, lið Gylfa Þórs Sigurðssonar, mætir botnliði Sunderland en sigur liðsins á Fulham í vikunni var sá fyrsti síðan í lok október í deildinni. Gylfi Þór kom ekkert við sögu í leiknum en fær vonandi tækifærið á Leikvangi ljóssins í dag.
Enski boltinn Mest lesið Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Íslenski boltinn Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Fótbolti Mourinho hringdi í Ferguson og grét Enski boltinn Trump segir að það væru skelfileg mistök að koma Infantino frá völdum Fótbolti Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Körfubolti Sannaði að draumar geta ræst með gamalli mynd Fótbolti Kominn með samning við risafyrirtæki og fær eigin pílur Sport Af botninum og varð Evrópumeistari eftir 324 daga fjarveru vegna meiðsla Sport Fleiri fréttir Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Sjá meira