Pellegrini: Aguero er betri en Suarez Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2013 13:30 Sergio Aguero. Mynd/NordicPhotos/Getty
Flestir stjórar í ensku úrvalsdeildinni væru til búnir að skipta á sínum aðal sóknarmanni og Liverpool-framherjanum Luis Suarez en ekki Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City. Luis Suarez hefur verið mikið á milli tannanna á fólki eftir að hann skorað fernu á móti Norwich í vikunni og er Úrúgvæmaðurinn nú búinn að skora þrettán mörk og leggja upp fjögur í níu leikjum sínum á leiktíðinni. „Suarez er mjög mikilvægur framherji en ég tel að Sergio taki meira þátt í leiknum," sagði Manuel Pellegrini á blaðamannafundi fyrir leik Manchester City og Southampton sem fer fram í dag. Sergio Aguero er næstmarkahæsti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni en hann hefur skorað tveimur mörkum minna en Luis Suarez. „Sergio er bara 25 ára gamall og auðvitað tel ég hann geta bætt sig sem leikmann. Hann hefur sem dæmi bætt vinnusemi sína mikið á þessu ári. Sergio hefur alltaf verið toppleikmaður sem skorar mikið af mörkum. Núna er hann hinsvegar að vinna miklu meira fyrir liðið þegar hann er ekki með boltann sem er mikilvægt fyrir okkur," sagði Pellegrini. Pellegrini veit ekki um betri leikmann í ensku úrvalsdeildinni en argentínska framherjann sinn og hrósar honum fyrir fjölhæfni sína. „Ég sagði aldrei að Sergio væri besti framherjinn í ensku úrvalsdeildinni en ég sagði að hann væri besti leikmaðurinn. Það eru kannski til betri framherjar í deildinni en þeir eru ekki eins fullkomnir leikmenn og hann," sagði Pellegrini.Mynd/NordicPhotos/Getty
Enski boltinn Mest lesið Missti typpið út úr buxunum en náði samt besta tíma ársins Sport Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Íslenski boltinn Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Körfubolti Eir Chang sló Íslandsmet liðsfélaga síns og Ísland vann 3. deildina Sport Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Fótbolti Átti fullkomið hlaup fyrir aftan nöfnu sína frá Moldóvu Sport Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fótbolti Keypti net í fluginu út á EM til að horfa á Systraslag Sport Fleiri fréttir Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Sjá meira