Enski boltinn

Alan Pardew: Manchester United á að halda Moyes

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alan Pardew, knattspyrnustjóri Newcastle, fagnar sigri á Old Trafford í dag.
Alan Pardew, knattspyrnustjóri Newcastle, fagnar sigri á Old Trafford í dag. Mynd/AFP
Alan Pardew, knattspyrnustjóri Newcastle, var ánægður eftir 1-0 sigur Newcastle á Manchester United á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í dag en Newcastle-liðið hefur nú unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni.

„Þetta er ein af bestu stundunum mínum hjá Newcastle. Félagið var búið að bíða í 41 ár eftir þessum sigri. Þetta var frábær frammistaða. Ég veit af við fáum ekki fyrirsagnirnar vegna United og David Moyes en við eigum það skilið því leikmennirnir voru frábærir," sagði Alan Pardew.

„Ég bað mína að spila öðruvísi bolta í dag og að halda boltanum meira. Við gerðum þeim erfitt fyrir og þetta var flottur dagur fyrir okkur. Við áttum þennan sigur skilinn. Við stjórnuðum leiknum og þeir sköpuðu sér ekki mikið," sagði Pardew sem finnur til með David Moyes.

„Þetta er erfið staða fyrir David Moyes og hlutirnir gengu ekki upp hjá honum án Rooney. Hann er frábær persóna og góður stjóri. Það besta sem félagið getur gert er að styðja hann áfram. Hann hefur sýnt það og sannað að hann er frábær kostur fyrir þetta félag," sagði Alan Pardew.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×