Enski boltinn

Agüero frá í allt að átta vikur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Agüero gengur af velli um helgina.
Agüero gengur af velli um helgina. Nordic Photos / Getty Images
Manchester City fékk þau slæmu tíðindi í gær að sóknarmaðurinn Sergio Agüero gæti verið frá keppni í allt að átta vikur.

Manuel Pellegrini, stjóri City, sagði þetta við enska fjölmiðla en Agüero meiddist í 6-3 sigri liðsins á toppliði Arsenal í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

„Læknirinn sagði að hann yrði frá í að minnsta kosti einn mánuð og allt að átta vikur,“ sagði Pellegrini.

Agüero hefur skorað þrettán mörk á tímabilinu og skoraði fyrsta markið gegn Arsenal áður en hann var tekinn af velli í upphafi síðari hálfleiksins.

Hann missit af leik City gegn Liverpool á öðrum degi Jóla og gæti þess vegna misst af mikilvægum toppslag gegn Chelsea í byrjun febrúar, sem og leikjum liðsins gegn Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×