Eiður Smári var uppáhaldið hans Hasselbaink Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2013 23:30 Eiður Smári Guðjohnsen og Hollendingurinn Jimmy Floyd Hasselbaink fagna marki. Mynd/AFP
Eiður Smári Guðjohnsen og Hollendingurinn Jimmy Floyd Hasselbaink léku saman í framlínu Chelsea á árunum 2000 til 2004, frá því Chelsea keypti þá sumarið 2000. Hasselbaink kom frá Atlético de Madrid en Eiður Smári frá Bolton. Þeir náðu vel saman og Hasselbaink talar afar vel um íslenska landsliðsmanninn í viðtali í nýjasta tímariti FourFourTwo en Jimmy Floyd Hasselbaink tók nýverið við belgíska félaginu Royal Antwerp. „Hann var uppáhalds félagi minn í framlínunni, já. Eiður og ég vorum mjög góðir vinir innan vallar sem utan vallar," sagði Hasselbaink í viðtali í nýjasta tímariti FourFourTwo en þetta kemur fram á fótbolti.net. Jimmy Floyd Hasselbaink skoraði 69 mörk í 136 deildarleikjum með Chelsea á þessum fjórum tímabilum en Eiður Smári skoraði á sama tíma 40 mörk í 123 deildarleikjum. „Ég held að það mikilvægasta hafi verið að við vildum báðir að hinum aðilanum myndi ganga vel. Við náðum að vega hvorn annan upp því ég hafði ákveðna hluti sem Eiður hafði ekki og öfugt." „Við vissum alltaf hvar hinn aðilinn var á vellinum hverju sinni. Við lögðum upp mörk fyrir hvorn annan en hann sá samt aðeins meira um að leggja upp en ég. Þetta virkaði bara. Það hjálpaði líka að hann talaði hollensku reiprennandi," segir Jimmy Floyd Hasselbaink í nýjasta tímariti FourFourTwo. Besta tímabilið þeirra saman var 2001-02 en Hasselbaink skoraði þá 23 mörk í 35 leikjum en Eiður Smári var með 14 mörk í 32 leikjum. Þeir voru því saman með 37 deildarmörk það tímabilið.
Enski boltinn Mest lesið „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Íslenski boltinn Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Fótbolti Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Enski boltinn Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ Íslenski boltinn „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ Íslenski boltinn „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Íslenski boltinn Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Enski boltinn „Þetta gekk eins og í sögu“ Íslenski boltinn Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Sjá meira