Enski boltinn

Kagawa missti af leiknum gegn Newcastle vegna ofáts

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Kagawa gat aðeins horft á leikinn í gær.
Kagawa gat aðeins horft á leikinn í gær. mynd/nordic photos/getty
Japanski miðjumaður enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United lék ekki með liðinu í tapinu gegn Newcastle í gær vegna veikinda. Dæla þurfti upp úr maga hans í kjölfars ósigursins gegn Everton á miðvikudaginn.

„Shinji var mjög veikur eftir (Everton) leikinn og æfði aðeins á föstudaginn en var í engu standi,“ sagði Moyes eftir leikinn gegn Newcastle í gær.

„Hann mældist mjög illa og vildum við ekki taka neina áhættu á frekari meiðslum með að nota hann (í gær).

„Hann varð mjög veikur. Hann heldur að hann hafa borðað of mikið og það varð að dæla úr maga hans en ég held að hann jafni sig af þessu.“

Umhyggjusamur nágrani kallaði á sjúkrabíl á miðvikudagskvöldið eftir að Kagawa var kominn heim til sín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×