Enski boltinn

Vidic útskrifaður af sjúkrahúsi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nemanja Vidic
Nemanja Vidic Nordicphotos/Getty
Nemanja Vidic, fyrirliði Manchester United, hefur verið útksrifaður af sjúkrahúsi eftir að hafa fengið heilahristing í leik liðsins gegn Arsenal á sunnudag.

Vidic meiddist eftir samstuð við markvörðinn David De Gea rétt fyrir hálfleik og þurfti að fara af velli. Farið var með hann á sjúkrahús til nánari skoðunar.

Í yfirlýsingu frá félaginu sem birt var fyrir stundu kom fram að Vidic hefði verið útskrifaður. Ekki liggja þó fyrir nánari upplýsingar um ástand hans.

Umræða um höfuðmeiðsli í ensku úrvalsdeildinni hafa verið í hámæli eftir að Hugo Lloris, markvörður Tottenham, hélt áfram leik eftir að hafa misst meðvitund eftir samstuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×