Enski boltinn

Harðlega gagnrýndir fyrir að hafa leyft Lloris að halda leik áfram

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bera átti leikmanninn af velli í gær. Hann neitaði að yfirgefa völlinn
Bera átti leikmanninn af velli í gær. Hann neitaði að yfirgefa völlinn nordicphotos/getty
Enska knattspyrnuliðið Tottenham hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að hafa leyft Hugo Lloris að leika áfram eftir samstuð sem hann varð fyrir við Lukaku í leik gegn Everton en markvörðurinn missti meðvitund.

Þegar að Lloris rankaði aftur við sér neitaði hann að fara af velli og spilaði út leikinn en um stundarfjórðungur var eftir af leiknum þegar atvikið átti sér stað.

Góðgerðarsamtökin Headway sem standa vörð um fólk með heilaskaða hafa nú gagnrýnt Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóra Tottenham, harðlega og telja að leikmaðurinn hafi aldrei átt að halda leik áfram.

„Við höfum miklar áhyggjur af forgangsröðun hjá enskum atvinnumannaliðum ef þetta er það sem koma skal,“ sagði Luke Griggs, talsmaður samtakanna.

„Þegar leikmaður verður fyrir svona meiðslum verður klúbburinn að grípa inn í og hugsa fyrst og fremst um heilsu leikmannsins.“

„Höfuðmeiðsli geta verið gríðarlega alvarleg og sérstaklega þegar leikmenn missa meðvitund. Það þarf að koma þeim strax undir læknishendur.“

„Læknir Tottenham-liðsins hefði í raun alltaf átt að kalla leikmanninn af velli. Hann var ekki í neinni aðstöðu til að taka slíka ákvörðun sjálfur um að halda leik áfram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×