Wenger í sérflokki Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. desember 2013 06:00 Arsene Wenger. Mynd/NordicPhotos/Getty
Tottenham og West Brom eru í leit að nýjum stjóra eftir að Andre Villas-Boas og Steve Clarke voru reknir á dögunum. Fimm stjórar hafa fengið að taka pokann sinn á leiktíðinni og ljóst að þolinmæði eigenda ensku úrvalsdeildarfélaganna gagnvart mönnunum í brúnni er lítil. Eftir að Sir Alex Ferguson lét af störfum í vor eftir 27 ár í starfi hjá Manchester United ber Arsene Wenger, stjóri Arsenal, höfuð og herðar yfir kollega sína í deildinni þegar kemur að lengd starfsferils. Frakkinn hefur stýrt Arsenal frá haustinu 1996 þegar hann tók við liðinu af Bruce Rioch. Forveri Wengers hékk í starfi í eitt ár áður en hann fékk að fjúka. Sá líftími er í takt við þann sem stjórar á Englandi og víðar búa við. Reyndar eru laun stjóranna af þeirri stærðargráðu að enginn ætti að missa svefn yfir starfsskilyrðum þeirra. Helmingur stjóranna í ensku úrvalsdeildinni hefur verið skemur en eitt ár í starfi. Sá sem hefur verið næstlengst í starfi er Alan Pardew, stjóri Newcastle. Sá enski heldur upp á þriggja ára afmæli í starfi hjá þeim svörtu og hvítu í mánuðnum. Meðalstarfsaldur stjóranna átján sem stýra liðum í ensku úrvalsdeildinni í dag er rétt rúm tvö ár. Starfsaldur Wengers skekkir myndina töluvert. Sé hann ekki talinn með er meðalstarfsaldur hinna sautján þrettán mánuðir.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Fleiri fréttir Crystal Palace - Tottenham | Margir í banni hjá gestunum Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Sjá meira