Arsenal vann WBA í vítakeppni og mætir Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. september 2013 21:48 Thomas Eisfeld fagnar marki sínu. Mynd/NordicPhotos/Getty
Arsenal er komið áfram í enska deildabikarnum eftir 4-3 sigur á West Bromwich Albion í vítakeppni þegar liðið mættust í kvöld á The Hawthorns, heimavelli WBA. Leikurinn sjálfur endaði 1-1. Arsenal mætir Chelsea á heimavelli í næstu umferð. Spænski bakvörðurinn Nacho Monreal skoraði úr síðustu spyrnu Arsenal og tryggði liðinu sæti í sextán liða úrslitum keppninnar. Arsenal klikkaði á sinn annarri spyrnu en leikmenn WBA skutu framhjá í tveimur spyrnum sínum og Arsenal-menn nýttu sér það. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, skipti nær algjörlega um lið því það voru aðeins Per Metesacker and Serge Gnabry sem héldu sætu sínu frá 3-1 sigrinum á Stoke í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Thomas Eisfeld kom Arsenal í 1-0 á 61. mínútu eftir stoðsendingu frá Nicklas Bendtner en danski framherjinn var að spila sinn fyrsta leik með Arsenal í tvö ár. Saido Berahino jafnaði metin aðeins tíu mínútum síðar en hann skoraði einmitt þrennu í sigri á Newport County í umferðinni á undan. Fleiri mörk voru ekki skoruðu í venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja. West Brom fékk nokkur góð færi á lokakafla framlengingarinnar og Morgan Amalfitano átti meðal annars skot í slá. Arsenal-liðið hélt út og því þurfti að útkljá leikinn í vítakeppni þar sem Arsenal tryggði sér farseðillinn í sextán liða úrslitin.Vítakeppnin: 1-0 WBA - Steven Reid, mark 1-1 Arsenal - Nicklas Bendtner, mark 2-1 WBA - Markus Rosenberg, mark 2-1 Arsenal - Serge Gnabry (Luke Daniels varði) 3-1 WBA - James Morrison, mark 3-1 Arsenal - Kris Olsson, mark 3-2 WBA - Craig Dawson, framhjá 3-3 Arsenal - Chuba Akpom, mark 3-3 WBA - Morgan Amalfitano, framhjá 4-3 Arsenal - Nacho Monreal, mark
Enski boltinn Tengdar fréttir Swansea steinlá - úrslitin í enska deildarbikarnum í kvöld Swansea City og Liverpool féllu bæði út úr enska deildabikarnum í fótbolta í kvöld. Liverpool tapaði 0-1 fyrir Manchester United á Old Trafford en Swansea City steinlá á útivelli á móti b-deildarliði Birmingham. 25. september 2013 20:51 United sló Liverpool út úr deildabikarnum í endurkomu Suarez Javier Hernández skaut Manchester United áfram í enska deildabikarnum í kvöld þegar hann skoraði eina markið í 1-0 sigri á Liverpool á Old Trafford í kvöld. Leikurinn var opinn og skemmtilegur og vissulega færi til að skora fleiri en eitt mark. 25. september 2013 20:15 Chelsea bíður Arsenal komist Arsenal-liðið áfram - búið að draga Eftir leiki kvöldsins í enska deildabikarnum í fótbolta var dregið í sextán liða úrslitin. Stórleikur umferðarinnar er hugsanlegur nágrannaslagur Arsenal og Chelsea en fyrst þarf Arsenal að slá út West Bromwich Albion því þar stendur yfir framlenging. 25. september 2013 21:17 Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Stjörnufólk stendur í ströngu á sunnudaginn Körfubolti „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Besta sætið: Vítaspyrnuvæl og stórleikir um helgina Sport „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Körfubolti Fleiri fréttir Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Sjá meira
Swansea steinlá - úrslitin í enska deildarbikarnum í kvöld Swansea City og Liverpool féllu bæði út úr enska deildabikarnum í fótbolta í kvöld. Liverpool tapaði 0-1 fyrir Manchester United á Old Trafford en Swansea City steinlá á útivelli á móti b-deildarliði Birmingham. 25. september 2013 20:51
United sló Liverpool út úr deildabikarnum í endurkomu Suarez Javier Hernández skaut Manchester United áfram í enska deildabikarnum í kvöld þegar hann skoraði eina markið í 1-0 sigri á Liverpool á Old Trafford í kvöld. Leikurinn var opinn og skemmtilegur og vissulega færi til að skora fleiri en eitt mark. 25. september 2013 20:15
Chelsea bíður Arsenal komist Arsenal-liðið áfram - búið að draga Eftir leiki kvöldsins í enska deildabikarnum í fótbolta var dregið í sextán liða úrslitin. Stórleikur umferðarinnar er hugsanlegur nágrannaslagur Arsenal og Chelsea en fyrst þarf Arsenal að slá út West Bromwich Albion því þar stendur yfir framlenging. 25. september 2013 21:17