Handaafskurður og húðstrýkingar í hegningarlög Brúnei Þorgils Jónsson skrifar 23. október 2013 08:53 Soldáninn í Brúnei, Hassanal Bolkiah, tilkynnti um ný og strangari hegningarlög í landinu í dag. Mynd/AP
Lögbrjótar í smáríkinu Brúnei eiga ekki von á góðu eftir að Sjaría-lög verða tekin upp þar í landi eftir um hálft ár. Það mun meðal annars fela í sér refsingar eins og húðstrýkingar fyrir brot á innflytjndalögum og afskurð handa fyrir þjófnað auk þess sem þeir sem eru staðnir að framhjáhaldi verða grýttir. Soldáninn í Brúnei, Hassanal Bolkiah, tilkynnti þessa ákvörðun í dag. Hingað til hefur Sjaría-lögum aðallega verið beitt í fjölskyldudeilum, en Soldáninn hefur um árabil vonað að koma þessum breytingum í gegn til að auka áhrif Íslams í ríkinu, sem er gríðarauðugt vegna olíuauðlinda. Lögin munu aðeins eiga við um múslima, sem eru um tveir þriðju þjóðarinnar. Awang Abdul Aziz, fremsti fræðimaður Brúnei um málefni tengd íslam, sagði að lögin muni „tryggja réttlæti og velferð til handa öllum.“ „Einblínum ekki á handaafskurð, grýtingar eða flengingar sem slíkar, heldur líka á skilyrðin þar að baki. Það er ekki verið að grýta fólk af handahófi, flengja þau eða skera af þeim hendur. Það eru skilyrði og réttlátar aðferðir til að framfylgja þeim.“ Awang bætti því við að þeir óttuðust ekki að ferðamenn myndu forðast að heimsækja landið eftir að nýju lögin taka gildi. „Eru allir ferðamenn að koma hingað til að stela? Ef ekki, þurfa þeir ekki að óttast neitt. Trúið mér þegar ég segi að með nýju Sjaría-hegningarlögunum munu allir, þar á meðal ferðamenn, hljóta viðeigandi vernd.“ Ekki er búist við því að nýju lögin muni mæta mikilli andstöðu meðal almennings, en íhaldssemi hefur lengi verið rík með þjóðinni, til dæmis er sala áfengis bönnuð þar í landi. Hassanal Soldánn hefur ríkt sem þjóðhöfðingi Brúnei síðan 1967 og fer með framkvæmdavaldið það. Hann á ekki að venjast almennri gagnrýni á störf sín og stefnu.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Felldu næðstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Sjá meira