Chelsea sló Arsenal út á Emirates - sjötti sigurinn í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2013 21:37 César Azpilicueta fagnar marki sínu. Mynd/AP
Chelsea sló Arsenal út úr sextán liða úrslitum enska deildabikarsins þegar lærisveinar Jose Mourinho unnu 2-0 sigur á Emirates-leikvanginum í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn frá tímabilinu 2002 til 2003 þar sem Arsenal-liðið kemst ekki í átta liða úrslit deildabikarsins. César Azpilicueta og Juan Manuel Mata skoruðu mörk Chelsea en liðið hefur nú unnið sex leiki í röð í öllum keppnum og virðist vera kominn á skrið undir stjórn Portúgalans. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, gerði átta breytingar á liðinu sem vann Crystal Palace á laugardaginn en það voru bara þeir Aaron Ramsey, Santi Cazorla og Laurent Koscielny sem "héldu" sæti sínu. Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, gerði enn betur því það var bara Gary Cahill sem hélt sæti sínu frá liðinu sem vann Manchester City á sunnudaginn. Annan leikinn í röð fengu Chelsea-menn mark á silfurfati frá mótherjum sínum. César Azpilicueta komst þá inn í skallasendingu bakvarðarins Carl Jenkinson aftur til Lukasz Fabianski í markinu. Azpilicueta þakkaði pent fyrir og kom Chelsea í 1-0 á 25. mínútu. Juan Manuel Mata bætti við öðru marki Chelsea á 66. mínútu með frábæru skoti fyrir utan teig eftir að Willian skallaði boltann til hans. Mesut Ozil og Olivier Giroud komu báðir inná í seinni hálfleiknum en það dugði ekki til og Chelsea landaði sigri og sæti í átta liða úrslitum keppninnar.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Sjá meira