Kerry: Efnavopn notuð í Sýrlandi Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 25. apríl 2013 17:09 Hamid Karzai, forseti Afganistan, John Kerry og Asfhaq Parvez, yfirmaður herafla Pakistan. MYND/AP
Sýrlenski stjórnarherinn hefur að minnsta kosti tvisvar beitt efnavopnum gegn uppreisnarmönnum. Þetta fullyrti John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í dag. Í morgun tilkynnti talsmaður Hvíta hússins í Washington að traustar vísbendingar væru um að sýrlensk stjórnvöld hefðu fyrirskipað árásir á uppreisnarhópa þar sem sarín-gas var notað. Sarín er banvænt taugaeitur sem ræðst á taugakerfið og lamar starfsemi þess.Tíu ára gamall, sýrlenskur flóttamaður í flóttamannabúðunum í Mafraq í Jórdan.MYND/APYfirvöld í Bandaríkjunum hafa hingað til forðast þátttöku í óöldinni sem geisað hefur í Sýrlandi síðustu ár. Notkun efnavopna af hálfu þarlendra stjórnvalda gæti þó breytt þeirri afstöðu. Það var varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Chuck Hagel, sem fyrst vakti athygli á málinu fyrr í dag. Hann er nú í opinberri heimsókn í Abú Dabí. Þar sagði Hagel að það væri mat aðila úr leyniþjónustu Bandaríkjanna að sýrlenski stjórnarherinn hefði beitt sarín-gasi gegn uppreisnarmönnum. Uppreisnin gegn Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, hófst fyrir rúmum tveimur árum. Liðsmenn andspyrnuhópanna eru af ýmsum þjóðernum en að stærstum hluta til sýrlenskir uppreisnarmenn. Talið er að hátt í 70 þúsund manns, uppreisnarmenn og stjórnarhermenn, hafi fallið í átökunum.
Mest lesið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Skotmennirnir feðgar Erlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Innlent Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Innlent Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Sjá meira