Enski boltinn

Börn notuð sem burðardýr á knattspyrnuleikjum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik Newcastle og Liverpool í október síðastliðnum.
Úr leik Newcastle og Liverpool í október síðastliðnum. Nordic Photos / Getty Images
Samkvæmt enskum fjölmiðlum hafa ung börn verið notuð sem burðardýr til að smygla blysum og flugeldum á knattspyrnuleiki þar í landi.

Ný rannsókn hefur verið birt en samkvæmt henni hafa átta ára börn verið notuð í þessum tilgangi.

Rannsóknin sýndi enn fremur að þriðjungur áhorfenda í Englandi hafi orðið fyrir beinum áhrifum flugelda og blysa á leikjum. 86 prósent hafa áhyggjur af eigin öryggi vegna þessa.

Það er vitaskuld bannað að kveikja á flugeldum eða blysum á leikjum en brot á þeim reglum getur leitt til þess að viðkomandi verði settur í bann eða dæmdur til fangelsisvistar.

Frá því að keppnistímabilið hófst í haust í Englandi hafa alls komið upp 96 tilfelli sem tengjast flugeldum og blysum á leikjum í fjórum efstu deildum Englands og ensku bikarkeppninni.

Alls komu upp 172 atvik allt tímabilið í fyrra og var þá talsverð aukning á milli ára. Alls var 71 aðili handtekinn í fyrra vegna þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×