Enski boltinn

Wenger ætlar að treysta á Sanogo

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sanogo í leik með Arsenal.
Sanogo í leik með Arsenal. Nordic Photos / Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, gaf sterka vísbendingu um að félagið ætli ekki að kaupa sóknarmann í næsta mánuði.

Wenger sat fyrir svörum blaðamanna nú í morgun en Arsenal mætir Hull annað kvöld í ensku úrvalsdeildinni.

„Ég hef ekki áhyggjur af þessu. Við fengum Yaya Sanogo til okkar í sumar og hann mun koma til baka í janúar eftir meiðsli. Vonandi mun hann hjálpa okkur á seinni hluta tímabilsins,“ sagði Wenger.

Yaya Sanogo er 20 ára og 191 sentimetra franskur unglingalandsliðsmaður. Arsenal keypti hann frá Auxerre þar sem hann skoraði 10 mörk í 13 leikjum á síðustu leiktíð. Sanogo meiddist á baki í landsliðsverkefni í haust og hefur aðeins náð að spila tvo keppnisleiki fyrir Arsenal.

Hann neitaði því að félagið hefði lagt fram tilboð í Alexander Pato og Alvaro Morata.

„Nei, það er ekkert hæft í þessu. Ég hef ekkert verið í sambandi við Real Madrid,“ sagði hann spurður um Morata.

Frakkinn Oliver Giroud er í raun eini hreinræktaði framherji liðsins fyrir utan Danann Nicklas Bendtner sem á enga framtíð hjá félaginu. Giroud hefur verið frábær en má alls ekki missa mikið úr vegna meiðsla eða leikbanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×