Rodgers ósáttur við forsvarsmenn Cardiff og Spurs Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. desember 2013 11:15 Brendan Rodgers náði góðum árangri með Swansea áður en hann tók við Liverpool. Nordicphotos/Getty „
Eina skýring mín á þessu er sú staðreynd að þarna ræður ferðinni viðskipamaður sem hefur nákvæmlega enga þekkingu á fótbolta,“ segir Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool. Guardian fjallar um málið. Norður-Íranum finnst framkoma eigenda Tottenham og Cardiff í garð stjóra sinna til skammar. Tottenham lét Andre Villas-Boas fara eftir átján mánuði í starfi á dögunum og flest bendir til þess að Malky MacKay hjá Cardiff fari sömu leið. „Mér finnst þessi umræða um Malky með ólíkindum,“ segir Rodgers en þeim er vel til vina. Skotinn kom Cardiff upp í úrvalsdeildina í fyrra og einnig í úrslit deildarbikarsins er liðið spilaði í b-deildinni. Eigandi Cardiff, Vincent Tan, á að hafa sent skoska stjóranum tölvupóst og sett honum stólinn fyrir dyrnar. Annaðhvort segi hann sjálfur upp eða verði rekinn. „Hann á eftir að verða stjóri hjá stóru félagi og mér finnst ótrúlegt að það sé einu sinni til umræðu að láta hann fara.“ Cardiff situr í 15. sæti deildarinnar fjórum stigum frá fallsæti. Rodgers segir að sér hafi staðið til boða að taka við liði Tottenham sumarið 2012. Hann hafi valið Liverpool fram yfir Lundúnafélagið eftir að hafa skoðað hve lítinn tíma stjórar Tottenham fengju með liðið. „Það munaði mjóu. Þeir eru glæsilegt félag og ég horfði meðal annars til sögu þeirra. Þeir höfðu hins vegar verið með 11 stjóra undanfarin átján ár þannig að það var ekki málið fyrir mann eins og mig. Ég vildi fara til félags þar sem tími fengist til uppbyggingar.“
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Gray hetja Tottenham Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fleiri fréttir Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Sjá meira